Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Published
Í 22. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.670.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
*Dagsetning* *Tími* *Keyptir hlutir*
*Viðskiptaverð (gengi)*
*Kaupverð (kr.)* 30.05.2023 09:32 1.000.000
4,56
4.560.000
31.05.2023
10:02 1.000.000 4,56
4.560.000 02.06.2023
10:43 1.000.000
4,55
4.550.000 *Samtals* *3**.000.000* *13**.**670**.000*
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024. Nova Klúbburinn átti 4.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 7.000.000 hluti, eða um 0,18% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 32.280.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is