Fly Play hf.: Útgáfa nýs hlutafjár

Fly Play hf.: Útgáfa nýs hlutafjár

GlobeNewswire

Published

*Fly Play hf.: Útgáfa nýs hlutafjár*Stjórn Fly Play hf.: kt. 660319-0180, hefur þann 18. ágúst 2023, ákveðið að hækka hlutafé félagsins um kr. 7.575.759 að nafnvirði, úr kr. 860.867.577 í kr. 868.443.336, að nafnverði, með útgáfu 7.575.759 nýrra hluta.
Hlutirnir eru gefnir út til efnda á kaupréttarsamningum sem félagið gerði við tiltekna starfsmenn og eru gefnir út á genginu 8.
Heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins er til samræmis við samþykktir félagsins en samkvæmt heimildinni hafa hluthafar ekki forgangsrétt að nýjum hlutum, heldur er stjórn heimilt að gefa út hluti til efnda skuldbindinga félagsins skv. kaupréttarsamningum.
Fyrirtækjaskrá hefur nú afgreitt tilkynningu um hækkun hlutafjár og hefur félagið óskað eftir að  framangreindir hlutir verði teknir til viðskipta á First North. Hluthafaskrá Fly Play hf. verður uppfærð til samræmis.

Full Article